Williamsliðið mætir til leiks á vertíðinni á næsta ári, 2015, með óbreytta liðsskipan.
Staðfesti liðið í Monza í dag áframhaldandi ráðningu Valtteri Bottas og Felipe Massa sem ökumanna þess.
„Það er mér sönn ánægja að staðfesta að Felipe og Valtteri munu keppa fyrir Williams einnig 2015,“ sagði liðsstjórinn og stofnandinn Frank Williams.
„Það er ánægjulegt að vinna með Felipe en í hans tilviki sameinast hrár hraði og mikil reynsla. Og um nokkurra ára skeið höfum við vitað að Valtteri er einstaklega hæfileikaríkur. Það hefur honum tekist að sýna og sanna eftir að við létum honum FW36-bílinn í té,“ sgði Williams.