Rosberg áfram efstur

Nico Rosberg í bílskúr Mercedes milli aksturslota í Silverstone í …
Nico Rosberg í bílskúr Mercedes milli aksturslota í Silverstone í dag. mbl.is/afp

Rétt eins og á fyrri æfingunni í Silverstone í dag sat Nico Rosberg hjá Mercedes í efsta sæti lista yfir hröðustu hringi er upp var staðið. Liðsfélagi hans Lewis Hamilton setti fjórða besta tímann en milli þeira urðu ökumenn Ferrari.

Hamilton var um hálfri sekúndu lengur með hringinn en Rosberg og kvartaði undan lítillri rásfestu bílsins í langakstri.

Ökumenn Red Bull, Daniil Kvyat og Daniel Ricciardo, urðu í fimmta og sjötta sæti og rétt innan við sekúndu á eftir Rosberg. Aðrir voru lengra á eftir en í sætum sjö til tíu urðu Max Verstappen hjá Toro Rosso, Nico Hülkenberg hjá Force India, Carlos Sainz hjá Toro Rosso og  Felipe Massa hjá Williams.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert