Þrjú keppnislið formúlu-1 hafa dagsett frumsýningar 2017-bíla sinna.
Fyrst þeirra verður Force India sem svipa mun hulum af sínum bílum 22. febrúar næstkomandi í Silverstone í Englandi en þar er bækistöðvar liðsins að finna.
Daginn eftir verður Mercedes á ferðinni með sinn bíl sem kynntur verður við athöfn í Silverstone. Áhugamönnum gefst kostur á að fylgjast með nokkrum fyrstu æfingahringjum bílsins sem frumreyndur verður við athöfnina. Þurfa þeir aðeins að skrá sig til útdráttar á heimasíðu liðsins.
Á þriðja degi, hinn 24. febrúar, kemur svo röðin að Ferrari sem frumsýnir sinn keppnisbíl 24. febrúar í einkabraut sinni í Fiorano á Ítalíu.