Räikkönen fljótastur

Kimi Räikköen hjá Ferrari ók hraðast á fyrstu æfingu mótshelgarinnar í Spa-Francorchamps í Belgíu í dag. Var hann 53 þúsundustu úr sekúndu fljótari en Lewi Hamilton hjá Mercedes og þriðja besta hringinn átti liðsfélagi Räikkönen, Sebastian Vettel.

Vettel var 0,1 sekúndu á eftir Hamilton en rúmlega 0,6 sekúndum á undan fjórða manni, Max Verstappen hjá Red Bull. Verstappen var síðan 50 þúsundustu úr sekúndu fljótari í förum en liðsfélagi hans, Daniel Ricciardo.

Í sætum sex til tíu urðu í þessari röð Valtteri Bottas hjá Mercedes, Carlos Sainz hjá Toro Rosso, Esteban Ocon hjá Force India, Daniil Kvyat hjá Toro Ross og Stoffel Vandoorne hjá McLaren, en hann var tveimur sekúndum lengur en Räikkönen að klára hringinn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert