Kimi byrjar helgina

Tveir gamlir og góðir. Kimi Räikkönen er vel á fertugsaldri …
Tveir gamlir og góðir. Kimi Räikkönen er vel á fertugsaldri en þessi gamli forni Alfa Romeo kappakstursbíll er mun eldri. AFP

Alfa Romeo hefur staðfest að Kimi Räikkönen muni þrátt fyrir allt aka á fyrstu æfingu morgundagsins í Spa. Í framhaldi af því verður skoðað hvort hann verði líkamlega fær til að klára helgina.

Räikkönen tognaði í kviði í sumarfríi ökumanna og efasemdir hafa verið um hvort  hann gæti keppt í belgíska kappakstrinum í Spa um helgina. Varaökumaðurinn Marcus Ericsson var sóttur til Bandaríkjanna til að vera til taks í Spa ef á þyrfti að halda.

Árið 2013 missti Räikkönen af tveimur mótum undir lok vertíðar vegna skurðaðgerðar á baki. Í það skiptið leysti landi hans Heikki Kovalainen hann af.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert