Argentínumenn eru komnir í 1. sæti á stigalista Alþjóðaknattspyrnusambandsins, FIFA, en þeir voru í þriðja sæti á síðasta lista fyrir mánuði. Íslendingar eru í 86. sæti og hafa hækkað um 9 sæti frá síðasta lista.
Ítalar eru í 2. sæti á listanum og Brasilíumenn eru komnir niður í þriðja sætið. Aðrar breytingar hafa ekki orðið á röð 10 efstu þjóðanna.