Ísland tapaði 1:0 gegn Wales

Úr leik Íslands og Wales á Laugardalsvelli.
Úr leik Íslands og Wales á Laugardalsvelli. mbl.is/G. Rúnar

Ísland og Wales áttust við í vináttulandsleik í fótbolta á Laugardalsvelli í kvöld og var þetta fyrsti heimaleikur liðsins undir stjórn Ólafs Jóhannessonar á Laugardalsvelli.  Ched Evans skoraði eina mark leiksins undir lok fyrri hálfleiks og var það fyrsta umtalsverða færi Wales í leiknum. Fylgst var með gangi mála í beinni textalýsingu á mbl.is.

Grétar Rafn Steinsson varð í morgun að hætta við þátttöku í leiknum í kvöld vegna meiðsla í hné og Heimir Einarsson frá Akranesi var kallaður inní hópinn í hans stað. Bjarni Ólafur Eiríksson hefur einnig helst úr lestinni vegna meiðsla en Birkir Már Sævarsson kom í hans stað í gær og fer beint í byrjunarliðið.

Eggert Gunnþór Jónsson, hinn 19 ára gamli leikmaður Hearts í Skotlandi, var í byrjunarliðinu í fyrsta skipti og lék hann við hliðina á hinum 18 ára  gamla Aroni Einari Gunnarssyni frá Alkmaar í Hollandi, sem hefur verið þrívegis í byrjunarliði Íslands í fimm leikjum liðsins á þessu ári. Eggert lék sinn fyrsta landsleik í nóvember þegar hann kom inná gegn Dönum á Parken, í fyrsta leik landsliðsins undir stjórn Ólafs Jóhannessonar.

Stefán Þór Þórðarson var í fremstu víglínu og spilaði sinn fyrsta landsleik í níu ár.

Varamenn: Fjalar Þorgeirsson (Fylki), Helgi Valur Daníelsson (Elfsborg), Jónas Guðni Sævarsson (KR), Hannes Þ. Sigurðsson (Sundsvall), Theódór Elmar Bjarnason (Lyn),  Arnór Smárason (Heerenveen),  Heimir Einarsson (ÍA).


Úr leik Íslands og Wales á Laugardalsvelli.
Úr leik Íslands og Wales á Laugardalsvelli. mbl.is/G. Rúnar
Ísland kn. kk. 0:1 Wales opna loka
90. mín. Leik lokið
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert