Ísland upp um eitt sæti

Ísland fer upp um eitt sæti á styrkleikalista FIFA milli …
Ísland fer upp um eitt sæti á styrkleikalista FIFA milli mánaða. mbl.is/Domenic Aquilina

Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu færist upp um eitt sæti á styrkleikalista sem alþjóðaknattspyrnusambandið, FIFA gefur út. Ísland er nú í 97. - 98. sæti listans. Evrópumeistararnir, Spánverjar tróna á toppnum líkt og í síðasta mánuði þegar listinn var síðast gefinn út. Þýskaland er í öðru sæti listans og Ítalía í þriðja sæti. Hafa þjóðirnar sætaskipti milli mánaða. Holland færist upp um eitt sæti og er í fjórða sæti og Króatía fer upp um tvo sæti upp í það fimmta. Mesta fallið niður listann er Víetnam sem fellur niður um 41 sæti úr 124. sæti niður í 165. sæti.

Sjá má listann í heild sinni hér. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert