Ronaldinho hetja AC Milan

Ronaldinho skoraði sigurmark AC Milan í gær.
Ronaldinho skoraði sigurmark AC Milan í gær. Reuters

Ronaldinho er sjálfsagt einn allra vinsælasti maðurinn meðal stuðningsmanna AC Milan þessa stundina, eftir að Brasilíumaðurinn tryggði liðinu sigur gegn nágrannaliðinu, Inter Mílanó í gærkvöldi. Leiknum lauk með 1:0-sigri AC Milan og sem fyrr segir var það Ronaldinho sem skoraði markið.

Þó liðsmenn Inter hafi ekki uppskorið mark í leiknum uppskáru þeir þó nokkuð af spjöldum og meðal annars tvö sem voru rauð á lit. Fyrst var það Nicolas Burdisso sem fékk brottvísun í síðari hálfleik eftir tvö gul spjöld og svo nældi vandræðagemsinn Marco Materazzi sér í beint rautt spjald fyrir að mótmæla einhverjum dómi afar harkalega. Materazzi hafði raunar verið skipt útaf þegar hann fékk að líta rauða spjaldið, þannig liðsmenn AC Milan enduðu 10 á vellinum þrátt fyrir tvö rauð spjöld.

Þegar fimm umferðum er lokið í ítölsku A-deildinni hefur Inter 10 stig í 4. sæti en AC Milan er með 9 stig í 6. sæti. Efst er Lazio með 12 stig.

Reggina, lið Emils Hallfreðssonar er í næst neðsta sætinu með aðeins eitt stig. Emil lék í 54 mínútur með liði sínu sem tapaði fyrir Palermo, 1:0.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka