Ásgeir valinn bestur

Ásgeir Sigurvinsson var valinn besti knattspyrnumaður Íslands í kvöld.
Ásgeir Sigurvinsson var valinn besti knattspyrnumaður Íslands í kvöld. mbl.is

Ásgeir Sigurvinsson er besti knattspyrnumaður Íslandssögunnar samkvæmt kosningu sem Stöð 2 sport stóð fyrir og kynnti í kvöld.

Fór kosning fram í kjölfar sýninga á þáttum stöðvarinnar 10 Bestu sem sýnd hefur verið um skeið á stöðinni.

Þótti Ásgeir standa framar en Albert Guðmundsson, Pétur Pétursson, Arnór Guðjohnsen, Eiður Smári Guðjohnsen, Atli Eðvaldsson, Guðni Bergsson, Ríkharður Jónsson, Rúnar Kristinsson og Sigurður Jónsson.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert