Dóra María og Guðmundur best í sumar

Guðmundur og Dóra María.
Guðmundur og Dóra María. mbl.is/hag

Dóra María Lárusdóttir úr Val og Guðmundur Steinarsson úr Keflavík voru valin bestu leikmenn Landsbankadeildanna á lokahófi knattspyrnumanna í gærkvöldi.

Breiðablik á greinilega mikið af efnilegum knattspyrnumönnum því efnilegustu leikmennirnir koma báðir úr Breiðabliki, Hlín Gunnlaugsdóttir og Jóhann Berg Guðmundsson.

Besti dómarinn var valinn Jóhannes Valgeirsson.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert