Ragnar aftur á skotskónum með IFK

Ragnar Sigurðsson leikur vel með með IFK frá Gautaborg um …
Ragnar Sigurðsson leikur vel með með IFK frá Gautaborg um þessar mundir. Ómar Óskarsson

Ragnar Sigurðsson gulltryggði IFK Gautaborg sigur Gefle IF, 3:0, í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöldi þegar hann skoraði á 64. mínútu. Þetta er annað mark Ragnars í deildinni í vor.  Með sigrinum komst IFK upp í efsta sæti deildarinnar, hefur 15 stig að loknum átta leikjum.

Helsingborg og Elfsborg eru einnig með 15 stig en hafa aðeins leikið sjö leiki, hvort félag.

Ragnar krækti sér í gult spjald á síðustu mínútu leiksins. 

Hjálmar Jónsson kom ekkert við sögu í leiknum í liði IFK.


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert