Rijkaard sagður vilja fá Eið Smára til Galatasaray

Eiður Smári í leik með Börsungum.
Eiður Smári í leik með Börsungum. Reuters

Að því fram kemur í spænskum fjölmiðlum hefur Frank Rijkaard nýráðinn þjálfari tyrkneska liðsins Galatasaray mikinn áhuga á að fá Eið Smára Guðjohnsen til liðs við sig frá Barcelona í sumar.

Spænska blaðið El Mundo Deportivo segir að Rijkaard hafi beint sjónum sínum að Eiði Smára en Rijkaard var við stjórnvölinn hjá Barcelona þegar félagið keypti Eið frá Chelsea fyrir þremur árum. Rijkaard yfirgaf Barcelona síðastliðið sumar og var á dögunum ráðinn þjálfari tyrkneska liðsins.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert