Frakkar mæta Írum í umspilinu

Cristiano Ronaldo og Nani eiga fyrir höndum tvo leiki með …
Cristiano Ronaldo og Nani eiga fyrir höndum tvo leiki með portúgalska landsliðinu gegn Bosníu um HM farseðil. Reuters

Frakkar drógust gegn Írum í umspili um sæti á heimsmeistaramótinu í knattspyrnu karla sem fram fer í Suður-Afríku á næsta sumri, en dregið var í hádeginu. Portúgal mætir Bosníu, Grikkir og Úkraínumenn eigast við og þá leiða Rússar og Slóvenar saman hesta sína.

Leikirnir fara fram 14. og 18. nóvember og fara fyrri leikirnir fram á heimavelli Íra, Portúgala, Grikkja og Rússa. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert