Svakalegar tæklingar Framarans (myndskeið)

Kyle í einni af fjölmörgum tæklingum gegn Stjörnunni.
Kyle í einni af fjölmörgum tæklingum gegn Stjörnunni. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Kyle McLagan, varnarmaður Fram í Bestu deild karla í fótbolta, hefur spilað einkar vel í fyrstu leikjum tímabilsins. Besta deildin hefur birt myndband af þremur tæklingum hans í jafntefli Fram og Stjörnunnar.

Fram fékk á sig flest mörk allra liða í Bestu deildinni á síðustu leiktíð en nú er öldin önnur. Fram hefur fengið á sig fæst mörk í deildinni, einungis fjögur í sex leikjum. Rúnar Kristinsson tók við þjálfun liðsins eftir síðasta tímabil og Kyle McLagan sneri aftur í Úlfarsárdalinn frá Víkingum.

Tæklingar Kyle gegn Stjörnunni má sjá hér fyrir neðan en þær eru hver annarri glæsilegri.

Kyle McLagan.
Kyle McLagan. Ljósmynd/Kristinn Steinn
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert