Ronaldo leikur á HM

Portúgalar fagna sigurmarki Raul Meireles.
Portúgalar fagna sigurmarki Raul Meireles. Reuters

Cristiano Ronaldo getur andað léttar því nú er ljóst að hann færi tækifæri til að láta ljós sitt skína með Portúgölum á HM næsta sumar. Portúgalar höfðu betur gegn Bosníumönnum á útivelli í kvöld, 1:0, og unnu einvígið samtals, 2:0. Það var Raul Meireles sem skoraði sigurmark Portúgala á 56. mínútu en enginn Ronaldo var í liði þeirra. Stórstjarnan er enn að jafna sig af meiðslum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert