Skúli: Sláin gerði gæfumuninn

Skúli Jón Friðgeirsson miðvörður KR sagði það hafa verið frábært að sjá félaga sína landa sigrinum leikmanni færri í bikarúrslitaleiknum á móti Þór. Skúli fékk rauða spjaldið í síðari hálfleik og þurfti því að fylgjast með síðustu 20 mínútunum úr stúkunni.

Skúli hefur ekki haft heppnina með sér í bikarúrslitaleikjum því í fyrra fékk hann dæmda á sig vítaspyrnu þegar KR tapaði fyrir FH. Hann gat hins vegar leyft sér að brosa að þessu sinni og sagði tilfinninguna hafa verið mjög sæta þegar flautað var til leiksloka.

Skúli gerði einnig grín að því að Þórsarar áttu fimm sláarskot í leiknum og sagði að sláin hafi líklega gert gæfumuninn í leiknum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert