Mourinho: Ómögulegt að vinna hérna

José Mourinho lætur Pep Guardiola heyra það í leiknum á Camp Nou í gærkvöld. stækka

José Mourinho lætur Pep Guardiola heyra það í leiknum á Camp Nou í gærkvöld. Reuters

José Mourinho þjálfari Real Madrid var að vonum ósáttur við að falla úr leik í spænsku bikarkeppninni í knattspyrnu í gærkvöldi og það fyrir erkifjendunum í Barcelona. Mourinho segir að sumir af hans leikmönnum trúi því að það sé ómögulegt fyrir þá að vinna sigur á Camp Nou.

Real Madrid réð ferðinni á stórum kafla í fyrri hálfleik en engu að síður höfðu Börsungar 2:0 yfir eftir fyrri hálfleikinn. Cristiano Ronaldo og Karim Benzema jöfnuðu metin fyrir Real Madrid um miðjan seinni hálfleik en fleiri urðu mörkin ekki og Barcelona vann einvígið samtals 4:3.

,,Við komum hingað með þeim tilgangi að komast áfram. Við vissum að það yrði erfitt en við mættum til leiks með því hugarfari. Hins vegar hef ég heyrt í búningsklefanum að það sé ómögulegt að vinna hérna. Ég hef verið með Chelsea, Inter og Real Madrid á þessum velli í nokkur skipti og þetta er ekkert nýtt,“ sagði Mourinho við fréttamenn eftir leikinn.

,,Ég vil óska Barcelona til hamingju fyrir það sem það gerði á Bernabeu í síðustu viku en ekki fyrir það að komast áfram,“ sagði Portúgalinn.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Íþróttir, Fótbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí


finnur.is