Carlo Ancelotti, þjálfari Real Madrid, segir að hann muni ekki taka ákvörðun um það hvort Cristiano Ronaldo spili á móti Bayern München í kvöld fyrr en rétt fyrir leik.
Þessi tvö stórlið eigast við í fyrri leiknum í undanúrslitum Meistaradeildarinnar á Santiago Bernabeu í Madrid. Ronaldo hefur glímt við meiðsli og hefur ekki getað spilað síðustu fjóra leiki Real Madrid-liðsins.
„Cristiano hefur æft vel en við munum taka ákvörðun um það hvort hann spili á morgun. Hann spilar ef hann verður leikfær,“ sagði Ancelotti.
Ronaldo hefur leikið 41 leik fyrir Real Madrid í öllum keppnum í vetur og skorað 45 mörk. Þó að Madrídarliðinu hafi tekist að leggja Barcelona að velli í úrslitum spænska konungsbikarsins á dögunum án Ronaldo, er ljóst að stuðningsmenn liðsins liggja á bæn og vonast til þess að Portúgalinn verði leikfær gegn Bayern München í kvöld.
Leikur Real Madrid og Bayern München hefst klukkan 18.45 í kvöld.