Pálmi skoraði í sigri Lilleström

Pálmi Rafn Pálmason skoraði fyrir Lilleström í dag.
Pálmi Rafn Pálmason skoraði fyrir Lilleström í dag. Ljósmynd/lsk.no

Pálmi Rafn Pálmason skoraði fyrra mark Lilleström þegar liðið vann 2:0-sigur á Sogndal í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.

Pálmi skoraði markið eftir tæplega hálftíma leik og Lilleström komst svo í 2:0 snemma í seinni hálfleik. Eftir sigurinn er Lilleström með 11 stig eftir 7 leiki í efri hluta deildarinnar. Hjörtur Logi Valgarðsson var í liði Sogndal fram á 65. mínútu en liðið er á botni deildarinnar.

Björn Bergmann Sigurðarson gat ekki leikið með toppliði Molde sem vann þó góðan útisigur á Rosenborg, 2:0. Liðið hefur unnið 6 leiki og er með tveggja stiga forskot á Strömsgodset sem er í 2. sæti.

Fyrr í dag vann Sarpsborg 2:1-sigur á Sandnes Ulf í Íslendingaslag. Guðmundur Þórarinsson lagði upp seinna mark Sarpsborgar með hornspyrnu en þeir Þórarinn Ingi Valdimarsson voru báðir í byrjunarliðinu. Hannes Þór Halldórsson varði mark Sandnes.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert