Guðmundur Þórarinsson var hetja Sarpsborg í norsku úrvalsdeildinni í gær þegar hann skoraði sigurmark liðsins í 4:3 sigri á Bodö/Glimt.
Markið kom fimm mínútum fyrir leikslok eftir flott spil og rak Guðmundur endahnútinn á sóknina með hnitmiðuðu skoti í teignum. Sarpsborg er í mikilli baráttu um miðja deild, er í áttunda sæti með 24 stig eftir 17 leiki.
Markið má sjá í meðfylgjandi myndskeiði.
Gudmundur Thorarinsson winning goal vs Bodo/Glimt from Sportic Players Management on Vimeo.