Þýska knattspyrnuliðið Hamburg rak í kvöld þjálfarann Mirko Slomka úr starfi en liðið hefur farið illa af stað í þýsku deildinni.
Hamburg tapaði í gær fyrir Hannover, 2:0, og situr á botni deildarinnar með eitt stig eftir þrjár umferðir. Slomka tók við þjálfun Hamburg í febrúar á þessu ári. Liðið var þá í bullandi fallhættu en honum tókst að forða liðinu frá falli.