„Um einstakt kvöld var að ræða fyrir alla hjá félaginu," sagði Brendan Rodgers, knattspyrnustjóri Liverpool, glaður í bragði þegar hann gekk af leikvelli á Anfield í kvöld eftir að Liverpool vann búlgarska lið Ludogorets, 2:1, í fyrsta leik liðsins í Meistaradeild Evrópu í fimm ár.
Steven Gerrard tryggði Liverpool sigurinn á þriðju mínútu í uppbótartíma með marki úr vítaspyrnu þegar allt stefndi í jafntefli.
„Það var magnað að vinna leikinn. Strákarnir sýndu frábæran karakter allt til enda og uppskáru samkvæmt því," sagði Rodgers ennfremur en hann stýrði liði í fyrsta sinn í riðlakeppni Meistaradeildarinnar í kvöld