José Mourinho knattspyrnustjóri Chelsea hrósaði fyrirliðanum John Terry sem í kvöld lék sinn 100. leik í Meistaradeildinni þegar Chelsea bar sigurorð af Sporting í Lissabon.
„100 leikja klúbburinn er ekki fjölmennur. Aðeins fáir ná því að spila 100 leiki í Meistaradeildinni og það fyrir sama félagið,“ sagði Mourinho.
„Hann hefur kannski ekki verið fyrirliði í öllum þessum leik en klárlega í flestum af þeim. Hann er sögulegur leikmaður og mun skrá nafn sitt í sögubækur Chelsea,“ sagði Mourinho.