Lilleström, lið landsliðsmarkvarðarins Guðbjargar Gunnarsdóttur, varð í dag bikarmeistari í knattspyrnu í fyrsta sinn þegar liðið lagði Trondheims Örn að velli í úrslitaleik, 3:1.
Trondheims Örn komst yfir í fyrri hálfleik en Lilleström svaraði með þremur mörkum í seinni hálfleik.
Guðbjörg sat á varamannabekk Lilleström en hún hefur lítið sem ekkert spilað fyrir liðið síðan hún kom til þess í sumar, meðal annars vegna meiðsla. Hún varði þó mark liðsins í undanúrslitunum og hélt hreinu í 4:0-sigri á Avaldsnes.
Lilleström vann tvöfalt í ár því liðið vann einnig norsku deildina.