Eftir leiki kvöldsins í Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu hafa átta lið tryggt sér keppnisrétt í 16-liða úrslitunum og fleiri geta bæst í hópinn annað kvöld. Chelsea og Shakhtar komust áfram í kvöld.
Þessi lið eru komin áfram:
Real Madrid
Borussia Dortmund
Bayern München
París SG
Barcelona
Chelsea
Porto
Shakhtar Donetsk
Annað kvöld geta Atlético Madrid, Olympiacos, Basel, Leverkusen og Arsenal öll tryggt sér sæti í 16-liða úrslitum.
Önnur lið sem enn eiga möguleika á að komast áfram og gætu náð öðru tveggja efstu sætanna í lokaumferðinni í desember:
Juventus, Malmö, Liverpool, Ludogorets, Mónakó, Zenit Pétursborg, Benfica, Anderlecht, Galatasaray, Roma, Manchester City, CSKA Moskva, Schalke, Sporting Lissabon.