Alfreð Finnbogason er á meðal varamanna Real Sociedad sem mætir í heimsókn til toppliðs Real Madrid í spænsku 1. deildinni í knattspyrnu klukkan 15.
Sociedad er í ellefta sæti deildarinnar fyrir leikinn með 22 stig en Real Madrid er á toppnum með 48 stig og getur náð fjögurra stiga forystu á Barcelona, sem á þó leik til góða.