Aron Jóhannsson skoraði fyrsta mark AZ Alkmaar þegar liðið hrósaði sigri gegn Heracles, 3:1, í hollensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.
Aron skoraði eftir 9 mínútna leik og var það þriðja mark hans í deildinni á tímabilinu en hann lék allan tímann.