Prinsinn bað Wenger um vægð

Albert prins af Mónakó gat fagnað í leikslok ásamt föruneyti …
Albert prins af Mónakó gat fagnað í leikslok ásamt föruneyti sínu. AFP

Albert prins af Mónakó var á meðal áhorfenda þegar Mónakó lagði Arsenal á útivelli í sextán liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í London í kvöld, 3:1, og er liðið í góðri stöðu fyrir seinni leikinn á heimavelli.

„Ég bjóst aldrei við því að sjá þessi úrslit á þessum velli, en þetta er fyllilega verðskuldað. Jafntefli hefði meira að segja verið frábært fyrir okkur,“ sagði prinsinn eftir leikinn. Hann sagðist hafa komið skilaboðum til herbúða Arsenal fyrir leikinn.

„Ég hitti Arsene [Wenger] fyrir leikinn og bað hann að vera góður við okkur. Ég kenni svolítið í brjósti um hann núna, að við höfum stolið senunni af honum,“ sagði Albert prins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert