Það fer ekki vel af stað eftir vetrarhléið hjá Ólafi Kristjánssyni og lærisveinum hans í Nordsjælland.
Nordsjælland tapaði í dag á útvelli fyrir Hobro, 1:0, í dönsku úrvalsdeildinni. Guðjón Baldvinsson lék allan tímann fyrir Nordjælland, Guðmundur Þórarinsson var tekinn af velli á 88. mínútu. Nordsjælland hefur þar með tapað báðum leikjum sínum eftir vetrarfríið en liðið steinlá, 3:0, á heimavelli fyrir Randers um síðustu helgi.