Spænski þjálfarinn Pep Guardiola hefur tekið af allan vafa um það að hann verði áfram þjálfari Þýskalandsmeistara Bayern München á næstu leiktíð. Liðið mætir Porto í seinni leiknum í 8 liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í kvöld þar sem Porto er yfir, 3:1, og að því hafa verið leiddar líkur að Guardiola kveðji tapi Bayern einvíginu, og taki jafnvel við Manchester City:
„Ég verð hér á næsta ári. Þannig er framtíð mín,“ sagði Guardiola.