Guðbjörg hélt hreinu fimmta leikinn í röð

Guðbjörg Gunnarsdóttir setti í lás við upphaf tímabils og hefur …
Guðbjörg Gunnarsdóttir setti í lás við upphaf tímabils og hefur ekkert opnað búrið eftir það. Ómar Óskarsson

Landsliðsmarkvörðurinn Guðbjörg Gunnarsdóttir hélt marki sínu hreinu fimmta leikinn í röð þegar að Lilleström vann Hólmfríði Magnúsdóttur og Þórunni Helgu Jónsdóttur í Avaldsnes í efstu deild norska fótboltans í dag.

Hólmfríður spilaði allan leikinn fyrir Avaldsnes en Þórunn Helga sat á bekknum. Lilleström er í efsta sæti deildarinnar eftir fimm umferðir með fullt hús stiga, tveimur á undan Klepp í 2. sætinu.

Lilleström hefur markatöluna 6:0 og hefur unnið fjóra af fimm leikjum sínum 1:0.

Avaldsnes er í 7. sætinu með sjö stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert