Casillas vill fá De Gea til Real Madrid

Iker Casillas.
Iker Casillas. AFP

Iker Casillas fyrirliði og markvörður Real Madrid segir að liðið eigi að kaupa markvörðinn David de Gea frá Manchester United.

De Gea hefur verið sterklega orðaður við Real Madrid en Casillas hefur verið gagnrýndur fyrir frammistöðu sína á milli stanganna og margir telja að dagar hans séu taldir með liðinu.

Spurður af fréttamönnum hvort hann vilji sjá De Gea koma til félagsins frá Manchester United sagði Casillas; „Að sjálfsögðu vil ég það,“ sagði Casillas sem segist sjálfur ætla að vera áfram í herbúðum félagsins. „Já ég verð i Real Madrid á næsta tímabili,“ sagði Casillas.

Casillas er 34 ára gamall sem hefur leikið allan sinn feril með Real Madrid og hefur verið í aðalliði félagsins frá 1999. Hann hefur fimm sinnum orðið Spánarmeistari með Real Madrid og hefur unnið Meistaradeildina þrisvar sinnum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert