Eiður Smári Guðjohnsen er þessa dagana við æfingar í Bandaríkjunum eins og mbl.is greindi frá á dögunum. Þar sem tímabilið er búið hjá Bolton í ensku B-deildinni vildi Eiður Smári halda sér í formi fyrir landsleikinn mikilvæga gegn Tékkum á Laugardalsvelli þann 12. júní.
Ekki var greint frá hjá hvaða félagi Eiður væri við æfingar, en nú er komið í ljós að það er lið Philadelphia Union, sem spilar í MLS-deildinni þar í landi.
Liðið er í sjöunda sæti af tólf liðum í deildinni eftir að hafa spilað þrettán leiki, en Eiður Smári verður við æfingar þar í vikutíma.