Norðmaðurinn Ole Gunnar Solskjær er þeirra sem þykir koma til greina sem næsti þjálfari danska meistaraliðsins Midtjylland en aðeins mánuði eftir að hafa landað danska meistaratitlinum með
Midtjylland ákvað Glen Riddersholm að stíga til hliðar í gær.
Fjórir danskir þjálfarar eru einnig orðaðir við Midtjylland, einn þeirra er danska goðsögnin Michael Laudrup sem þjálfar lið Lekhwiya í Katar.