Gestgjafar Síle slógu Perú út í undanúrslitum Ameríkubikarsins í nótt með 2:1 sigri. Síle mætir annað hvort Argentínu eða Paragvæ, sem mætast í kvöld, í úrslitaleiknum.
Eduardo Vargas skaut Síle í úrslit á 64. mínútu með þrumufleyg af 20 metra færi. Þetta var annað mark Vargas í leiknum. Markið má sjá í meðfylgjandi myndskeiði en mbl.is leyfði sér að taka hljóðið af vegna afar skærra ópa lýsandans.