Juventus, ítölsku meistararnir í knattspyrnu, vonast eftir því að fá kólumbíska kantmanninn Juan Cuadrado lánaðan frá Englandsmeisturum Chelsea.
Kólumbíumaðurnn var keyptur til enska félagsins frá Fiorentina á Ítalíu í janúar en náði ekki að festa sig í sessi í liðinu til vorsins. Hann kom við sögu í fjórtán leikjum og náði ekki að skora. José Mourinho knattspyrnustjóri hefur þó sagt að hann sé með miklar væntingar í garð leikmannsins fyrir komandi tímabil.
„Við erum opnir fyrir öllu. Ef Chelsea vill lána okkur Cuadrado yrðu við mjög ánægðir," sagði Giuseppe Marotta, framkvæmdastjóri Juventus, við netmiðilinn Football Italia.