Rúnar Már Sigurjónsson skoraði jöfnunarmarkið fyrir Sundsvall í 2:2 jafntefli liðsins gegn IFK Gautaborg í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.
Rúnar átti frábæran leik fyrir Sundsvall sem náði frábærum úrslitum á móti Gautaborg, sem er í toppsætinu, og var meðal annars valinn maður leiksins af síðunni Norrboll.se. Sundsvall er í 13. sæti, tveimur stigum frá fallsæti, eftir 14 umferðir.
Rúnar jafnaði metin í 2:2 á 60 mínútu eftir flottan þríhyrning við liðsfélaga sinn og síðan átti hann þrumuskot rétt fyrir utan teig. Markið má sjá í meðfylgjandi myndskeiði.
Here is the fantastic goal by @RunarSigurjons for @GIFSundsvall vs. @IFKGoteborg. #TeamTotalFootball pic.twitter.com/RNdDifLjfe
— Total Football (@totalfl) July 5, 2015