Sænski knattspyrnusnillingurinn Zlatan Ibrahimovic var í viðtali í Bandaríkjunum þar sem PSG er í æfingaferð fyrir komandi tímabil. Hann var þar beðinn að lýsa ýmsum knattspyrnuköppum í einu orði.
Hann sagði Messi frábæran, Cristiano Ronaldo góðan og að Pep Guardiola væri góður þjálfari en slæm manneskja. Zlatan sjálfur fékk mikið hrós.
Myndbandið má sjá hér að neðan.