Chelsea bar sigurorð af Evrópumeisturum Barcelona á Alþjóðlega meistaramótinu en leikur liðanna fór fram í Washington í Bandaríkjunum í nótt að íslenskum tíma.
Liðin skildu jöfn, 2:2, eftir venjulegan leiktíma en Chelsea hafði betur í vítakeppni, 4:2. Eden Hazard kom Chelsea yfir á 10. mínútu en þeir Luis Suarez og Sandro Ramirez komu Börsungum í forystu í seinni hálfleik áður en Gary Cahill jafnaði metin fimm mínútum fyrir leikslok.