Haris Vuckic, leikmaður Newcastle United á Englandi, skoraði stórkostlegt mark er hann lék fyrir U21 árs liðið í æfingaleik gegn unglinga- og varaliði Ajax á dögunum.
Vuckic, sem er 22 ára gamall framherji, hefur verið á mála hjá Newcastle frá árinu 2009, en hann hefur undanfarin ár spilað á lánssamningum hjá liðum á borð við Cardiff City, Rotherham United og nú síðast Glasgow Rangers.
Hann skoraði stórkostlegt mark fyrir U21 árs lið Newcastle fyrir tveimur dögum er það mætti unglinga- og varaliði Ajax, en markið var í anda argentínska framherjans Lionel Messi, sem leikur með Barcelona. Sjón er sögu ríkari.