Fyrsti landsliðshópur Danny Blind

Danny Blind tilkynnti í dag hvaða leikmenn mæta Íslandi á …
Danny Blind tilkynnti í dag hvaða leikmenn mæta Íslandi á fimmtudaginn kemur. AFP

Danny Blind, landsliðsþjálfari karlaliðs Hollands í knattspyrnu, tilkynnti fyrr í dag hvaða leikmenn skipa fyrsta leikmannahóp hans og mæta Íslandi og Tyrklandi í næstu viku.

Blind sem tók við liðinu af Guus Hiddink fyrr í sumar sem landsliðsþjálfari Hollands gerir engar róttækar breytingar á liðinu.

Arjen Robben, leikmaður Bayern Munchen, tekur þó við fyrirliðabandinu af Robin Van Persie. 

Hollandi dugar ekkert annað en tveir sigrar í þessum tveimur leikjum enda fimm stigum á eftir Íslandi í A-riðli.

Hópurinn:

Markmenn:
Jasper Cillessen (Ajax)
Tim Krul (Newcastle)
Jeroen Zoet (PSV)

Varnarmenn:
Stefan de Vrij (Lazio)
Gregory van der Wiel (Paris Saint-Germain)
Bruno Martins Indi (Porto)
Daley Blind (Manchester United)
Kenny Tete (Ajax)
Terence Kongolo (Feyenoord)
Jeffrey Bruma (PSV)
Jairo Riedewald (Ajax)

Miðjumenn:
Wesley Sneijder (Galatasaray)
Davy Klaasen (Ajax)
Vurnon Anita (Newcastle)
Ibrahim Affelay (Stoke)
Quincy Promes (Spartak Moskva)
Arjen Robben (Bayern Munchen)
Georginio Wijnaldum (Newcastle)
Memphis Depay (Manchester United)
Luciano Narsingh (PSV)

Sóknarmenn:
Robin Van Persie (Fenerbahce)
Klaas-Jan Huntelaar (Schalke 04)
Luuk de Jong (PSV)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka