Kjartan Henry Finnbogason var á skotskónum með liði Horsens í dönsku B-deildinni í knattspyrnu í kvöld.
Kjartan skoraði bæði mörk sinna manna. Áhöld voru um það hvort Kjartan Henry hafi skorað fyrra markið. Danskir fjölmiðlar skrá að markið hafi verið sjálfsmark en dómari leiksins á að hafa skráð markið á Kjartan Henry, sem hefur nú skorað fjögur mörk í fyrstu sex leikjum liðsins.