Portúgalinn Cristiano Ronaldo, leikmaður Real Madrid, ku vera að slá sér upp með dönsku fyrirsætunni Maja Darving. Darving er 19 ára gömul stúlka sem getið hefur sér gott orð í fyrirsætubransanum.
Darving mætti á leik Malmö og Real Madrid í Svíþjóð í Meistaradeild Evrópu í síðustu viku. Eftir leikinn stungu Ronaldo og Darving saman nefjum sínum.
Ronaldo sleit sambandi sínu við rússnesku fyrirsætuna Irinu Shayk í byrjun þessa árs eftir fimm ára samband þeirra.
Ronaldo jafnaði á dögunum Raul Gonzales sem markahæsti leikmaður í sögu Real Madrid þegar hann skoraði sitt 323. mark fyrir félagið.