Bale tekur áhugamálið á næsta stig

Gareth Bale.
Gareth Bale. AFP

Velski knattspyrnumaðurinn Gareth Bale hjá Real Madrid er forfallinn golfáhugamaður og hefur hann nú hafið framkvæmdir við hús sitt í heimalandinu. Þar ætlar hann að koma upp eftirlíkingum af þremur af frægustu golfholum heims.

Holurnar sem Bale mun líkja eftir eru frímerkjaholan svokallaða, sem er áttunda holan á Troon-vellinum í Skotlandi, ellefta holan á Augusta-vellinum í Georgíu-fylki Bandaríkjanna og sautjánda holan á Sawgrass-vellinum í Flórída.

„Ég reyni að spila eins mikið golf og ég get. Ég er raunar háður því. Ég hugsa ekki mikið um hvað ég muni gera eftir að knattspyrnuferlinum lýkur, en vonandi mun ég geta spilað golf,“ sagði Bale.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert