Sölvi Geir Ottesen, Viðar Örn Kjartansson og félagar þeirra í Jiangsu Sainty urðu í morgun bikarmeistarar í kínversku knattspyrnunni. Jiangsu Sainty sigraði þá Shanghai Shenhua, 1:0 eftir framlengingu, í síðari bikarúrslitaleiknum.
Markalaust jafntefli varð í fyrri viðureign liðanna og Jiangsu Sainty dugði því eitt mark í dag til að tryggja sér titilinn. Króatíski landsliðsmaðurinn Sammir skoraði sigurmarkð á 109. mínútu leiksins.
Á meðal leikmanna í liði Shanghai Shenhua eru Demba Ba, sem lék með Chelsea og Newcastle í ensku úrvalsdeildinni, og Tim Cahill, sem gerði garðinn frægan hjá Everton.
Meðfylgjandi mynd birti Viðar á Instagram fljótlega eftir leikinn.