Jón Daði Böðvarsson lék fyrstu 70 mínútur leiksins þegar Kaiserslautern gerði 2:2 jafntefli við Union Berlin í þýsku 2. deildinni í knattspyrnu í dag. Var þetta fyrsti leikur Jóns Daða fyrir félagið en hann gekk til liðs við Kaiserslautern um áramótin.
Staðan var 2:0 fyrir Kaiserslautern þegar Jón Daði var tekinn af leikvelli en gestirnir frá Berlín tryggðu sér eitt stig með því að skora tvö mörk á síðustu 15 mínútum leiksins.
Eftir leikinn er Kaiserslautern í 7. sæti deildarinnar, með 27 stig.