Madridarliðin unnu bæði

Gareth Bale skoraði sigurmark Real Madrid gegn Real Sociedad í …
Gareth Bale skoraði sigurmark Real Madrid gegn Real Sociedad í dag. ANDER GILLENEA

Gareth Bale tryggði Real Madrid 1:0 sigur í leik liðsins gegn Real Sociedad í spænsku efstu deildinni í knattspyrnu karla í dag.

Atletico Madrid skaust síðan á topp deildarinnar og endurheimti eins stigs forskot sitt á nágranna sína með 1:0 sigri sínum gegn Rayo Vallacano þar sem Antoine Griezmann var hetja Atletico Madrid.

Atletico Madrid er eins og sakir standa á toppi deildarinnar með 85 stig, en Real Madrid er sæti neðar með 84 stig. Barcelona sem leikur þessa stundina við Real Betis er svo í þriðja sæti deildarinnar með 82 stig. Barcelona tyllir sér á topp deildarinnar með sigri gegn Real Betis. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert