Alfreð Finnbogason og félagar í Augsburg náðu ekki að leggja leikmenn FC Köln á heimavelli sínum í gærkvöldi í þýsku 1. deildinni í knattspyrnu.
Leikurinn var án marka og Augsburg fékk þar með aðeins eitt stig í baráttunni í neðri hluta deildarinnar. Augsburg er í 12. sæti af 18 liðum með 37 stig þegar fjórar umferðir eru eftir.
Alfreð lék allan leikinn með Augsburg en var ekki á skotskónum eins og í síðustu leikjum.
Jón Daði Böðvarsson skoraði ekki fyrir Kaiserslautern er liðið vann Frankfurt, 4:1, á útivelli í þýsku 2. deildinni. iben@mbl.is