Ari Freyr Skúlason, landsliðsmaður í knattspyrnu, innsiglaði sigur OB gegn Esbjerg á útivelli í dönsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld, 2:0.
Ari skoraði seinna mark OB beint úr aukaspyrnu þegar tvær mínútur voru komnar framyfir leiktímann. Hann og Hallgrímur Jónasson léku báðir allan leikinn í vörn Óðinsvéaliðsins. OB fór með sigrinum upp í sjötta sæti deildarinnar með 40 stig eftir 27 umferðir.